Klínísk reynsla og þekking
Sálarspekt er sálfræðiþjónusta stofnuð af Ágústu Ingibjörgu Arnardóttur sálfræðingi og sérfræðingi í klínískri sálfræði. Hún er einn af stofnendum SÓLAR sálfræði- og læknisþjónustu og fyrrum eigandi og hefur starfað þar síðastliðin 10 ár. Hún hefur einnig starfað á Landspítalanum frá 2007, fyrst á krabbameinsdeild og á Barnaspítalanum en síðar á BUGL bæði á göngudeild og í bráðateymi. Hún starfaði á Hvítabandi og var verkefnastjóri á Kleppi þar sem hún vann einnig að verkefnum tengdum uppbyggingu á þjónustu út frá DAM meðferðarnálgun. Hún hefur starfað sem sérhæfður starfsmaður á Landspítala síðastliðin ár bæði við handleiðslu en einnig þýðingar á DAM meðferðarefni fyrir fullorðna sem og unglinga.
Orðið sálarspekt er lítt þekkt en vísar í jafnvægi, stillingu og ró hugans. Sálarspekt nær því vel utanum það jafnvægi sem unnið er að í Díalektískri atferlismeðferð sem og annarri sálfræðimeðferð.
Ágústa Ingibjörg er sérfræðingur í klínískri sálfræði. Endurmenntun eftir að hún öðlaðist starfsréttindi sem sálfræðingur 2004:
- Sérnám í Hugrænni atferlismeðferð árið 2010
- Ítarleg þjálfun í Díalektískri atferlismeðferð 2015 -DBT
- Ítarleg þjálfun í Díalektískri atferlismeðferð fyrir börn 2016 DBT-C
- Ítarleg þjálfun í Díalektískri atferlismeðferð fyrir unglinga 2024 DBT-A
- EMDR þjálfun hluti 1 og 2 ásamt EMDR fyrir börn 2014
- Ítarleg þjálfun í áfallameðferð út frá DAM meðferðarnálgun fyrir fullorðna, unglinga og fólk með einhverfu 2024
- Þjálfun í Hugrænni úrvinnslumeðferð við áföllum
- Ýmis námskeið og þjálfun tengd kvíða, þunglyndi sem og taugaþroskaröskun þ.m.t. einhverfu.

