Þjónusta og meðferð
Sálfræðiaðstoð fyrir börn, ungmenni, fullorðna og fjölskyldur.

Þjónusta
Vandi er kortlagður í fyrstu viðtölum og í framhaldi rætt hvaða meðferðarnálgun hentar best.

DAM
DAM (dialektísk atferlismeðferð) er meðferð sem miðar að því að hjálpa fólki með mikinn tilfinningalegan óstöðugleika að koma jafnvægi á tilfinningarnar og þjálfa upp færni til að bregðast við á hjálplegan hátt. Færniþættir DAM eru alls 4 það eru Núvitund, Tilfinningastjórnun, Samskiptafærni og Streituþolsfærni. Í unglingameðferðinni bætist einn færniþáttur við sem er Meðalvegurinn. Upphaflega er DAM þróað fyrir skjólstæðinga með jaðarpersónuleikaröskun. Þannig er DAM árangursríkt í meðferð fyrir fólk með sterkar tilfinningar sem bregst við af hvatvísi sem veldur oft meiri vanda en ekki. DAM hefur bæði verið aðlagað fyrir unglinga og börn sem eru oft með mikinn reiðivanda og sveiflast í tilfinningum og viðbrögðum og birtist oft líkt og viss stjórnleysi. Unglingar eru oft með sjálfsskaðandi hegðun og sjálfsvígshugsanir sem unnið er með í meðferðinni. Fólk með einhverfu hefur einnig náð að tengja við þessa meðferðarnálgun þar sem lögð er áhersla á að skilja tilfinningar, hlutverk þeirra og viðbrögð við þeim sem eru best hverju sinni.
Í aðlagaðri DAM meðferð þá eru færniþættir kenndir í einstaklingsmeðferð og farið í gegnum þá þætti sem gagnast best til að ná að byggja upp líf sem einstaklingur vill lifa.
Í aðlagaðri DAM meðferð unglinga þá eru færniþættir kenndir í einstaklingstímum og eru foreldrar einnig stór partur af þeirri meðferð. Oft koma foreldrar í sér tíma ef þess þarf sér í lagi ef samskipti á heimili eru ekki góð eða foreldrar ráðalausir hvernig bregast eigi við.

HAM
Í HAM (hugræn atferlismeðferð) er unnið með að skoða hugsanir og tilfinningar sem koma upp í aðstæðum og reynt að finna út þær hugsanaskekkjur sem valda vanlíðan. Meðferð við lágu sjálfmati, félagskvíða, áráttu- og þráhyggju ásamt öðrum kvíða er gjarnan unnin út frá hugrænni atferlismeðferð. Einnig er atferlisvirkjun notuð í meðferð við þunglyndi. HAM meðferð er bæði þróuð fyrir börn sem og fullorðna og er HAM einna mest rannsakaða meðferðarúrræðið og hefur sýnt góðan árangur.

Áfallameðferð
Boðið er upp á áfallamiðaða meðferð fyrir börn og fullorðna. Metið er hverju sinni hvaða meðferðarnálgun passar hverjum einstaklingi.
Fyrir börn er áfallamiðuð hugræn atferlismeðferð (TF-CBT) oftast notuð. EMDR meðferð sem er sérstaklega aðlöguð að börnum getur verið notað í einhverjum tilfellum.
Fyrir fullorðna þá er Hugræn úrvinnslumeðferð (CPT), berskjöldunarmeðferð (PE) sem og EMDR meðferð þær meðferðir sem hafa sýnt bestan árangur þegar vinna á með áföll.

Einhverfa
Stuðningur og meðferð fyrir einstaklinga á einhverfurófi bæði börn og fullorðna. Einstaklingum er hjálpað að skilja betur einkenni sem eru hamlandi og hvernig skilningsleysi á einkennum s.s. annarskonar skynjun hafa haft áhrif á þróun kvíða. Unnið er með félagslegan kvíða út frá einkennum á einhverfurófi í stað hefðbundinnar berskjöldunarmeðferðar.
Foreldrar geta einnig fengið ráðgjöf varðandi börn sín en reynt er að vinna saman með foreldrum og börnum.
Unnið er með börn sem eru komin í skólaforðun og sjálfsskaðandi hegðun.