Fullorðnir og DAM
Hentar vel fyrir fólk með mikinn tilfinningavanda sem og þá sem eiga erfitt með að skilja og tengja við tilfinningar sínar. Áhersla lögð á viðbrögð við áreitum og hvað er hjálplegast eða árangursríkast að gera þegar vissar tilfinningar eða aðstæður koma upp.
Samskipti og færni til að takast á við þau og hvernig hjálplegt er að bregðast við í samskiptum. Farið í gegnum skilning og viðurkenningu og hvernig mikilvægt er að nota það til að stuðla að góðum samskiptum.